Færsluflokkur: Menning og listir
29.5.2013 | 23:18
Prjónakaffið verður fimmtudaginn, 6. júní kl. 20
7.3.2013 | 17:24
Prjónakaffið 7. mars 2013
Prjónakaffið er í kvöld, í Cafe Meskí, Fákafeni 9, 108 Reykjavík, kl. 20:00
Við ætlum að segja ögn frá viðburðum sem haldnir verða í tilefni þess að Heimilisiðnaðarfélagið ér 100 ára í ár.
Prjónakaffið er fyrir alla, konur og karla, félagsmenn og aðra gesti - alla sem hafa áhuga á prjónaskap og öðru handverki eða eru bara forvitnir um það.
3.1.2013 | 01:51
2013 - prjónakaffið á Café Merskí
Fyrsta prjónakaffi ársins er fimmtudag 3. janúar á Café Merskí.
Heimilisiðnaðarskólinn verður kynntur og munu kennarar mæta og sýna handverk sem kennt verður á vorönn. Þjóðbúningasaumur, allar gerðir af útsaumi, fjölmörg námskeið í prjóni, hekli, rússnesku hekli, skírnakjólar, orkering, spjaldvefnaður, vefnaður, leðurvinna, tálgun, tóvinna, spuni og margt margt fleira. Kynningin á skólanum gerði mikla lukku í fyrra.
Prjónakaffið er kl. 20:00 - 22:00, Þeir sem vilja geta komið fyrr og fengið sér léttan verð á vægu verði!
Það eru allir alltaf velkmnir í prjónakaffi - félagsmenn sem og allir aðrir sem hafa á huga á prjónaskap og öðru handverki. Hlökkum til að sjá ykkur!!
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 01:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.12.2012 | 03:02
prjónakaffið í desember ....
.... verður eins og alltaf 1l fimmdag mánaðarins, þann 6. des. Kl. 20:00
Það er Gunnar Helgason leikari sem kemur og les uppúr nýju bókinni sinni; Aukaspyrna á Akureyri.
Þeir sem vilja mæta snemma geta fengið sér eitthvað gott að borða,: kjúklingasalat, lasagna með salati, grænmetisbaka og panini með mozzarella og rauðlauk og léttu salati. Verði er stillt í hóf svo það ætti eitthvað að höfða til allra; Svo eru að sjálfsögðu kökur og gott kaffi.
Hlökkum til að sjá ykkur, Kveðja Alma og Lilja
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 03:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.11.2012 | 21:16
Prjónakaffið flytur.
Kæru prjónavinir.
Það er nú svo að prjónakaffið mun flytja úr Cafe Atlanta, og viljum við þakka Gauki kærlega fyrir hans góðu móttökur.
Næst þegar við hittumst verður það hjá stelpunum í Café Merski í Fákafeni 9 Reykjavík. Þær ætla að hafa fjölbreyttan mat í boði fyrir þá sem mæta snema,: kjúklingasalat, lasagna með salati, grænmetisbaka og panini með mozzarella og rauðlauk og léttu salati. Verði er stillt í hóf svo það ætti eitthvað að höfða til allra; Svo eru að sjálfsögðu kökur og gott kaffi
Hlökkum til að sjá ykkur,
Kveðja
Alma og Lilja
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 21:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.11.2012 | 01:53
1. nóv. 2012 - nýtt prjónakaffi
Það er hún Kristín Harðardóttir sem kemur í prjónkaffið í nóvember og kynnir nýju prjónbókina sína, Vettlingabókin, Gamlir og nýir vettlingar.
Prjónakaffið byrjar kl. 20:00 og húsið opnar kl. 18:00. Þá er boðið upp á súu og brauð, og kannski eru fleiri tilboð.
Staðsetning er: CAFE ATLANTA í Hlíðarsmára
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 02:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.10.2012 | 19:36
prjónakaffið í október 2012....
.... er auðvitað eins og alltaf 1. fimmtudag mánaðarins, þann 3. okt.
Staðsetning er: CAFE ATLANTA í Hlíðarsmára Kópavogi. Húsið opnar kl. 18:00, þá er hægt að fá sér eitthvað gott að borða. Prjónakaffið byrjar svo kl. 20:00 og kynning skömmu skíðar.
Það er Bjargey Ingólfsdóttir iðjuþjálfi kynnir hönnun sína á púðum sem heita BARA 123 og ýmsu fleiru sem er til stuðnings og bætir heilsu og eykur vellíðan. (www.bara123.is)
Það eru allir alltaf velkomnir í prjónakaffið.
4.9.2012 | 00:47
Prjónakaffið 6. september
Á prjónakaffinu n.k. fimmtudag (6. sept) munum við kynna Heimilisiðnaðarskólann og námskeiðin sem haldin verða þar á haustönninni.
Frjáls útsaumur, baldering, rússneskt hekl, orkering, skírnakjólar og margt margt fleira sem kennt er í Heimilisiðnaðarskólanum verður kynnt. Kennarar mæta á staðin og sýna handverk. Sjón er sögu ríkari. Matur og tilboð að hætti hússins.
Staðsetning er: CAFE ATLANTA í Hlíðarsmáranum. Húsið opnar kl. 18:00 og prjónakaffið hefst kl. 20:00
Hlökkum til að sjá ykkur
Alma og Lilja
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 00:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.7.2012 | 01:00
Prjónakaffi 5 júlí 2012.
Prjónakaffið er aftur komið í Hlíðarsmárann. Prjónakaffið hefst kl. 20:00 en húsið opnar kl.18.00 svo hægt er að fá sér að borða (eins og var á Amokka)
Heimilisiðnaðarfélag Íslands býður alla áhugasama velkomna í prjónakaffi í Cafe Antlanta í Hlíðarsmára, Kópavogi,
Það er Hélène Magnússon, Prjónakerling, sem kynnir "göngu- og prjónaferðir" sem hún skipuleggur í samstarfi við Íslenska Fjallaleiðsögumenn. Hún endar ferðina Prjónað um Víkingaslóð með okkur á prjónakaffi ásamt hópi prjónakvenna frá ýmsum löndum. Þema ferðarinnar var íslenskt blúnduprjón
Hélène mun nota tækifærið til að kynna einnig fyrir okkur *Love Story bandið* sem er einstaklega mjúkt og fínt íslenskt eingirni hannað af henni til að gera það allra besta úr íslensku ullinni.Ullin er í náttúrulegu sauðalitunum.
Munið að prjónakaffi er alltaf fyrsta fimmtudag í mánuði.
Hlökkum til að sjá ykkur.
Nefndin
20.6.2012 | 01:19
Prjónakaffið flytur
Við viljum vekja athygli á að prjónakaffi Heimilisiðnaðarfélags Íslands, flytur aftur í Hlíðarsmára í Kópavogi. Kaffihúsið heitir; Cafe Atlanta og er á sama stað og Amokka var.
Áfram verður sami háttur hafður á með mat, kaffi og kökur. Það verða tilboð í gangi.
Vonumst til að sjá sem flesta og bið ykkur um að láta boð út ganga um þessa breytingu.