15.3.2010 | 01:38
Breyting á tímasetningu
Það er undantekningin sem sannar regluna! 1. fimmtudagur í apríl er jafnframt skýrdagur og í samvinnu við eigendur Amokka hefur verið ákveðið að færa prjónakaffið til 2. fimmtudags í apríl, þ.e. 8. apríl.
Við biðjum alla að taka þátt í að láta það berast. Það eru þó nokkrir prjónavinir sem ekki hafa mikinn tölvuáhuga og til þeirra þarf að ná líka. Það væri leiðinlegt ef margir gerðu sér ferð upp í Amokka og kæmu þar að læstum dyrum, og upplifuð sitt aprílgabb þar með.
Svo hjálpumst að við að láta það berast. Næsta prjónakaffi er 8. apríl 2010 kl. 20:00. Og auðvitað er hægt að fá sér eitthvað gott að borða fyrir það.
Góðar kveðjur
Funda og fræðslunefnd HFÍ
Flokkur: Menning og listir | Breytt s.d. kl. 01:43 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.