2.8.2011 | 17:55
Istex á næsta prjónakaffi.
4. ágúst 2011 kl.20:00 - húsið er opið frá kl. 18:00
Heimilisiðnaðarfélag Íslands býður alla áhugasama velkomna í prjónakaffi í Amokka í Hlíðarsmára, Kópavogi,
Hulda Hákonardóttir, markaðs- og kynningarstjóri hjá Ístex mun kynna nýju Kambgarnsbókina og sýna okkur sýnishorn af prjónavörum sem eru í bókinni. Hún mun einnig fræða okkur um starfið sem fram fer hjá Ístex.
Einsog venjulega er ýmislegt góðgæti á borðstólnum því Karl og frú þau bregðast ekki.Munið að prjónakaffi er alltaf fyrsta fimmtudag í mánuði.
Hlökkum til að sjá ykkur.
Nefndin
Flokkur: Menning og listir | Breytt s.d. kl. 18:55 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.