25.9.2011 | 14:45
Prjónakaffið í september
Í prjónakaffinu 1. september kom Hélène Magnússon og kynnti hönnun sína og heimasíðuna sína prjonakerling.is. Hélène hefur rannsakað ísl. íleppaprjón og byggir margt af hönnun sinni á þeirri aðferð.
Guðbjörg Andrésdóttir og Margrét Sigurðardóttir úr skólanefnd Heimilisiðnaðarfélagsins komu líka og kynntu námskeið sem Heimilisiðnaðarskólinn heldur á haöstönn.
Eins og sjá má á myndum sem verið var að setja hér inn má sjá myndir af kynningunum og prjónandi konum sem áttu góða stund saman.
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.