Prjónakaffi 5. janúar n.k.

Gleðilegt ár og takk fyrir allar ánægjustundirnar í prjónakaffinu og annarsstaðar á liðnu ári.

Nú líður að næsta prjónakaffi.  Þá munum við kynna námsskrá Heimilisiðnaðarskólans á vorönn.  Það ætla nokkrir kennarar skólans að mæta og sýna það handverk sem þeir vinna og kenna.

Eins og venjulega er ýmislegt góðgæti á borðstólnum því Karl og frú þau bregðast ekki. Á matseðlinum mun verða ljúffengur fiskréttur og annað gott til að vega upp á móti jólasteikinni. Jólabjórinn verður á tilboði kr. 650.- í tilefni af að nú er fjórða árið okkar að byrja.  

Hlökkum til að sjá ykkur allar. Það er um að gera að taka með sér vini og kynna fyrir þeim þetta skemmtilega prjónakaffi!!! 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband