3.2.2010 | 01:43
Prjónakaffi - febrúar 2010
Nú er ástæða til að gleðjast. Það eru einmitt nú þrjú ár síðan prjónakaffið var fyrst haldið. Og síðan þá hefur það vaxið og dafnað langt umfram það sem bjartsýnustu konur gerðu ráð fyrir. Það er mjög sterkur kjarni sem mætir alltaf og það er líka alltaf þó nokkuð af konum sem hafa aldrei komið áður, ætla að prófa einu sinni en ánetjast svo prjóna-félagsskapnum.
Nú í febrúar er það Anna Silva, eigandi Garnbúðarinnar á Akranesi sem verður gestur prjónakaffisins í febrúar.
Hún ætlar að vera með kynningu á garni frá Argentínu sem heitir AslanTrends. Það er framleitt margs konar garn undir því merki, skrautgarn o.fl. Hún ætlar einni að kynna Denise prjóna og heklunálasett og ýmsa hjálparhluti fyrir prjónaskapinn. Einnig ætlar hún að kynna Namaste prjónatöskuna og eitthvað fleira. Bendi áhugasömum á heimasíðu verslunarinnar http://garnbudin.is
Hlökkum til að sjá ykkur allar. Minnum á að vertarnir í Amokka eru með húsið opin fyrir prjónakaffið og bjóða upp á veitingar á góðu verði.
Fr.Kr.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 01:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.1.2010 | 01:32
Nýtt prjónaár.
Gleðilegt ár kæru prjónafélagar og takk fyrir gömlu prjónaárin. Þetta hefur verið frábær tími og komandi ár gefur fyrirheit um enn fleiri prjónaafrek
Í næsta prjónakaffi, janúar 2010 mun
Edda Lilja Guðmundsdóttir
koma og kynna hvað hún hefur verið að vinna að á síðasta ári.
Hún setti sér markmið að gera 1 húfa í hverri viku árið 2009.
Hún hélt úti heimasíðunni http://www.snigla.com/ um verkefnið þar sem hægt var að fylgjast hvernig gengi.
Þessu mun hún segja okkur frá og líka hvað markmið hún hefur sett sér fyrir nýja árið.
Þetta verður mjög spennandi - hlakka mikið til að hitta alla
Fr.Kr.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 01:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.12.2009 | 01:35
Jólatréskraut.
"Viltu sýna mér þitt jólatréskraut og ég skal sýna þér mitt" sagði 8 ára drengur við vin sinn þegar hann var að þæfa jólakúlu til að hengja á jólatréð.
Minnum á að það er einmitt eitt af því sem við ætlum að gera á næsta prjónakaffi, n.k. fimmtudag. Við hvetjum alla til að kíkja í jólakassana sína og koma með handgert jólatréskraut. Það er mjög gaman að sjá hvað hinir eru að gera og það er líka gaman að sýna sitt. Það verður spennandi að sjá úrvalið.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 01:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.11.2009 | 01:51
Prjonakaffi í desember
Í þetta sinn verður dagskráin tvískipt.
Kristín Harðardóttir mun kynna nýja prjónabók sem hún gefur út, Prjónadagar. Bókin er með dagatali og einni uppskrift fyrir hvern mánuð. Kristín gefur ýmislegt fleira út sem hún segir okkur væntanlega frá. Hún er með heimasíðu: http://internet.is/kh/
Jólatréskraut
Síðan er það verkefnið fyrir alla gesti prjónakaffisins.Við bjóðum og biðjum alla sem geta og vilja að koma með heima- og handgert jólatréskraut. Við munum koma með jólatré í Amokka og vonumst til að þið skreytið það með ykkar hlutum og að við þannig getum skipst á hugmyndum og fengið að njóta fallegra hluta.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 02:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.11.2009 | 23:25
Næsta prjónakaffi er á fimmtudaginn (5.nóv.)
Prjónahettur
Það er Ebenezer Bárðarson sem hefur kynningu á næsta prjónakaffi. Hann býr til fallega smáhluti úr tré sem tengjast prjónum og prjónaskap. Það verður spennandi að sjá
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 23:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.10.2009 | 00:40
Myndir
Það voru u.þ.b. 140 manns á síðasta prjónakaffi. Eins og alltaf ríkti gleði og gaman. Og vinnusemi. Það m.a. má sjá á myndunum sem ég setti inn áðan, bæði frá prjónakaffinu í október og september s.l.
Njótið vel
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 01:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.9.2009 | 23:39
Meinleg villa í netpóstsendingum
Klaufaskapurinn eltir mig þessa dagana. Eins og venjulega var send á póstlista prjónakaffisins auglýsing fyrir næsta prjónakaffi. Það fór óvart gömul auglýsing í loftið.
Það var auðvitað leiðrétt með nýrri auglýsingu. En þá vildi ekki betur til en svo að í henni var meinleg vill. Veffangið er rangt skrifað hjá mér. Það á að vera www.prjonakona.com Ég vona að sem flestir sjái þetta. Alla vega leiðréttist það á prjónakaffinu næst.
Hlakka til þess
Fr.Kr
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 23:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.9.2009 | 22:26
1. október
er næsta prjónakaffi. Þá ætlar Elín Einarsdóttir að hafa kynningu. Elín heldur úti heimasíðunni www.prjonakona.com. Þar er m.a. netverslun þar er hægt að fá ýmislegt tengt prjónum og prjónaskap.
Elín var fyrst að flytja inn KnitPro prjónana sem eru að tröllríða öllum prjónaheiminum í dag.
Hún hefur verið með prjónanámskeið. M.a. hefur hún verið að kenna hvernig hægt er að prjóna tvo hluti í einu á einn langan hringprjón, þetta er skemmtileg aðferð sem hentar vel til að prjóna sokka, vettlinga, handstúkur, ermar o.fl. Í haust mun hún bjóða upp á fleiri prjónanámskeið
Það verður spennandi að heyra í Elínu og gaman að hitta kátar prjónakonur og karla ef einhver birtist!!
Freyja Kr.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 22:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.9.2009 | 00:10
Kæru prjónavinir
Nú er að koma að nýju prjónakaffi, alltaf 1. fimmtudag í mánuði svo það verður nú þann 3. september. Skólanefndin hjá Heimilisiðnaðarfélaginu ætlar að kynna fyrir okkur þau fjölbreyttu námskeið sem hún stendur fyrir.
Svo er auðvitað kaffið og kökurnar hjá Amokka. Og ekki síst að vertarnir þar opna strax kl. 18 og eru með mat fyrir þá sem vilja.
Setti inn myndir frá síðasta prjónakaffi þegar Ragnheiður frá Prjónaprjón kom og hitti okkur. Það má sjá á þeim að eins og venjulega var þar allt fullt af prjónandi konum að gera fallega hluti.
Fr.Kr.
Menning og listir | Breytt 27.9.2009 kl. 22:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.8.2009 | 23:05
Prjónakaffið 3. sept. n.k.
Á næsta prjónakaffi mun skólanefnd Heimilisiðnaðarfélagsins mæta og kynna námskeið á vegum Heimilisiðnaðarskólans. Sá skóli heldur mjög fjölbreytt og skemmtileg handverksnámskeið. Á heimasíðu HFÍ segir um skólann:
"Heimilisiðnaðarskólinn er rekinn af Heimilisiðnaðarfélagi Íslands og var stofnaður haustið 1979. Hann er handmenntaskóli sem skipuleggur markvisst nám í mörgum greinum heimilisiðnaðar, handmennta og listar.
Lögð er áhersla á að varðveita undirstöðuþekkingu í hverri námsgrein ásamt efnisfræði og þáttum úr sögu greinarinnar. Jafnframt er leitast við að opna augu nemenda fyrir samræmi lita og forma og gildi góðrar hönnunar í allri framleiðslu. Kappkostað er að varðveita gömul íslensk vinnubrögð og finna þeim stað í nútímanum. Nemendur sem þess óska fá vottorð um nám í skólanum og hafa fengið það viðurkennt sem þátt í námi í framhaldsskólum, sem aukna fagþekkingu í starfi og fá yfirleitt endurgreiddan hluta námskeiðskostaðar hjá stéttarfélögum.
Heimilisiðnaðarskólinn hefur á að skipa fjölmennu liði áhugasamra og vel menntaðra kennara sem vinna eftir fyrirfram gerðum kennslumarkmiðum sem eru í fullu samræmi við heildarmarkmið skólans. Nemendafjöldi á hverju námskeiði er að jafnaði 6 til 8 nemendur. Öll helstu áhöld og verkfæri eru í eigu skólans."
Það er því um að gera að mæta á prjónakaffið á fimmtudaginn, kynnast skólanum og hitta skemmtilegt fólk. Að ekki sé talað um að fá sér eitthvað gott í gogginn!!
Fr.Kr.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 23:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)










