7.4.2010 | 01:24
Prjónakaffið í apríl
Prjónakaffið verður á sínum stað í Amokka Kópavogi kl. 20:00 22:00 Kaffihúsið er opið fyrir þann tíma og býður upp á léttan hádegisverð gegn vægu verði.
Því miður hafa þeir sem ætluðu að hafa kynningu í apríl afboðað sig. Það hefur enn enginn fengist í staðin enda fyrirvarinn frekar stuttur. En það er engin ástæða til að örvænta, það verður nóg að gera og gaman að vera saman. Við eigum myndasýningu í handraðanum o.fl.
Ef hins vegar einhver er með efni sem hann / hún vill miðla okkur hinum má sá / sú hafa samband við okkur: netfangið er freyjakr@simnet.is
Á Amokka er boðið upp á léttann málsverð fyrir prjónakaffið. Matur er framreiddur kl. 18:00-19:30. Eftir það er selt kaffi og meðlæti.
Flokkur: Menning og listir | Breytt s.d. kl. 01:34 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.