5.5.2010 | 01:02
Jurtalitun
Það verða Sigrún Helgadóttir og Þorgerður Hlöðversdóttir sem halda kynningu á prjónakaffinu þann 6. maí.
Í 13 ár hafa þær prófað sig áfram í jurtalitun og safnað í sarpinn þekkingu, hugmyndum og reynslu. Nú eru þær að leggja lokahönd á bók um jurtalitun sem kemur út nú á vordögum.
Með því vilja þær koma á prent hagnýtum leiðbeiningum um jurtalitun og kenna aðferðir sem byggja á gömlum hefðum en taka mið af nútíma þekkingu, aðstæðum og náttúruvernd.
Á pjónakaffinu munu þær segja í stórum dráttum frá innihaldi og uppbyggingu bókarinnar og sýna afrakstur af jurtalitunartilraunum.
Munið að Amokka býður upp á léttann málsverð fyrir prjónakaffið. Matur er framreiddur kl. 18:00-19:30. Eftir það er selt kaffi og meðlæti.
Flokkur: Menning og listir | Breytt s.d. kl. 01:06 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.